Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

fimmtudagur, desember 09, 2004

Smá nasl í nætursárið!

Góðan og blessaðan daginn og velkomin á fætur öll sömul! Nú er enn einn dagurinn liðinn hérna í Ameríkunni og ekki nema TÆP vika eftir í útlandinu.... svei mér þá! Djöfull líður tíminn..... S.s eftir akkúrat viku, upp á klst, verð ég komin í jólastemninguna í Árbænum :) Ég átti að vera hér til 20, en svo var allt uppselt frá Boston fram að jólum þannig að mín varð bara að gjörasvo vel að fara annað hvort frá Baltimore, eða bara fara 15..... og tók ég þá ákvörðun að fara bara 15, enda ódýrasta ákvörðunin! Mar er alltaf að reyna að spara! En það þýðir að ég þarf að taka prófin 2 sem áttu að vera 18 og 19, fyrir 15....... þannig að núna er bara að duga eða drepast. Ég kláraði online kúrsinn minn í kvöld þannig að nú get ég byrjað að læra fyrir hin tvö. Svo þegar ég var búin með prófið þá "bauð" Lilja og Rut mér í ís heimsókn þar sem þær voru búnar að byrgja sig upp fyrir nóttina! Þar sem að ég var svo upptrekt eftir prófið ákvað mín bara að skella sér aftur í fötin (var búin að hátta og bursta enda kl um 1am) og brunaði upp í skóla!!!!!!
Þar áttum við saman dýrlega stund, svona í nætursárinu!

En nú er kl farin að ganga 4 og tími komin til að henda sér í bólið þar sem að það er enn einn langur læridagur framundan......

Gangi ykkur vel í prófunum (eða þeim sem eftir eru)!

bókorma kveðja
hildur

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home