Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Á skíðum skemmti ég mér trallalala....

Heilir og sælir félagar sukkabara og aðrir velunnara og góðkunningjar.
Bandaríkin heilsa með sól í hjarta og tungl á himni!
Nú er rétt rúmur mánuður þar til að maður kemur heim....... gaman gaman! Það þýðir s.s að það er farið að líða að jólum. Ekki hefur maður nú tekið eftir því, eftir að hafa dandalast á stuttbuxum í allan dag..... var það nú reyndar vegna þess að ég þurfti að fara í kálfanudd og ég nennti ekki að fara í gallabuxurnar, en mér var samt ekki kallt.... það var bara milt og fínt veður! Við stöllurnar, þ.e ég, Rut og Lilja, skruppum í snjóbuxnaleiðangur í dag og möxuðum allar kreditkortin!!!! En allavegana, við erum reddí á snjóbretti, eftir akkúrat viku..... veiiiiiiiiiiiiiiiiiii! Já ég keypti mér helvíti fínar snóbrettabuxur, hanska, snjógleraugu, "föðurland", skíðasokka og svo keypti ég mér ódýran topp fyrir gymmið.... fyrst ég var þarna á annað borð. Er einmitt að máta þetta allt núna..... eins gott mar haldi áfram að fara á snjóbretti þegar heim kemur þar sem maður eyddi öllum þessum pening í gírinn!

Heyriði já, sjæse, um daginn var ég í sakleysi mínu að ráfa niðri í kjallara (hasskjallaranum..... þ.e það er búið að gera svona chill herbergi þarna niðri með þythokkí borði og einhverju, en ein gellan sem ég bý með fer alltaf þangað að reykja... og þá á ég ekki við sígarettur...) en allavegana, þá var ég að leita að lampa, þar sem ég var að læra og vantaði meira ljós! Svo fer ég að róta í einhverjum kössum og vitiði hvað ég fann..... SVIPU!!!!! je dúdda mía..... ég vissi að gellan væri soldið crazy.... en vó! Kærastinn er nú í heimsókn hjá henni (s.s ekki búin að sjást í marga mánuði) og maður sér gelluna varla.... ég passa bara að hafa alltaf músík á eða sjónvarpið þar sem hún er í næsta herbergi!!!!!!!!

jæja, verð að fara halda áfram að greida testin hjá þessu heimska liði!!!! (af þeim 5 testum hefur enginn náð og ég er ekki búin að fara 100% yfir nein af þessum prófum, en þrátt fyrir að allt sé rétt það sem ég á eftir munu þau ekki ná.... ótrúlega sad!)

ttyl

hildur


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home