Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

sunnudagur, nóvember 21, 2004

IT'S PARTY TIME.....

Þá er komið enn eitt laugardagskvöldið, og enn eitt djammið! Það bara sér ekki fyrir endan á þessu........ næstu helgi er svo snjóbretti í Vermont (maður á ábyggilega eftir að lyfta sér eitthvað upp þar með heitu "kakó-i"), helgina þar eftir er enn eitt senior night, og verður þá tekið vel á því eins og síðasliðin ár og síðastliðinn sunnudag (það var verið að fagna ECAC meistaratitli... við erum ekki enn orðnir alkar), helgina þar á eftir verður ábyggilega eitthvað djamm þar sem það verður mitt síðasta djamm og svo helgina þar á eftir verður bara próf og leiðindi. Svo kem ég heim. Þannig að dagskráin er alveg fullpökkuð.
Ég sit bara hér inn í herbergi að hlusta á launch plus útvarpið... algjör snilld! Ég er búin að taka alla íbúðina alla í gegn því við díana erum að hózta partý í kvöld...... það var reyndar búið að gera neðri hæðina (s.s erum með chill kjallara, held ég hafi verið búin að skýra frá því) en áðan setti ég upp þythokkí borðið en ég hafði ekki tíma til að setja fótboltaborðið og körfubolta borðið saman (þetta er svona 3 leikir í einu borði) og svo fann ég einhvurs konar vinnuborð sem ég setti dúk yfir fyrir beer-pong-ið.... fyrir þá sem ekki vita þá er það svona borðtennis m/ bjór. Leikurinn s.s gengur út á það að hvert lið (oft 2 í liði, eða bara 1) byrjar með 10 glös með 1/4 bjór í (stór glös) og borðtennis bolta (oftast tvo til að flýta fyrir) sá sem byrjar, byrjar á því að henda boltanum yfir borðið og reynir að hitta oní glasið. Ef hitt er oní þarf það lið sem á glasið að drekka það glas, ef boltinn skoppar áður en hann fer oní glasið þarf að drekka 2 glös. Hægt er að blokka boltann en reynist það oft erfitt....... Sá tapar sem á enginn glös eftir. Þetta er spilað í hverju einasta partýi hér....... hef ég reyndar ekki verið mikill spilari en komst að því um daginn að ég á mér bara mikla framtíð í þessum leik :) gaman það!

Já til gamans má geta að áðan þurfti ég að fara að versla áfengi fyrir partýið.... s.s hér ef maður segir ekki við fólk að það þurfi að koma með þá býst það við að það sé í boðinu (nema norður evrópubúarnir) þannig að til öryggis þá keypti ég nú 30-pack af Busch Light... og kostaði það nú ekki nema 12.99$ eða skv nýjasta genginu innan við 1000 kr..... hvað kostar kippan annars í ríkinu ???? rúmlega það???? já, þetta fannst mér kjara kaup alveg.... en svo keypti ég mér sjálf 12-pack (f/ mig og herbergisfélagann) af corona sem kostaði um 12$ eða tæpan 1000 kr (þetta er ekki ódýrasti bjórinn, enda sá besti.... að mínu mati). Svo var keypt ódýrasta vodka flaskan á um 400 kr, til að setja í jelly shot-in, svo þurfti ég að kaupa fyrir diönu fokking Jack Daniels.... og var líterinn á 25$ eða um 1700 kr *(held ég að það se mun ódýrara heldur en heima)..... þetta + svo 3 twisterar handa rut voru á allt í allt um 4500 kr...... kjarakaup alveg (þessu var svo splittað milli mín og díönu.....) Allavegana, eitthvað vesen er á dorminu núna, ekki nóg af bílum, verð að skutlast eftir liðinu.... sjáumst hress og kát eftir rétt rúman mánuð.....

laterz

Hildur

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home