Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

laugardagur, desember 04, 2004

Á bretti skemmti ég mér trallalala....... og hana nú!

Heilir og sælir félagar sukkabarar.... fannst mér ekki annað við hæfi en að ávarpa félagana þar sem bakkus er hér hafður í hávegum sem aldrei fyrr..... Þetta er c.a 3 eða 4 síðasta djammið þar til ég fer heim..... Í kvöld er bara létt djamm, en á morgun verður hörku djamm..... sjæse!!!!! Ég er strax farin að vinna í því að verða ekki þunn á sunnudaginn..... það bara má ekki gerast þar sem að ég á eftir að læra slatti mikið fyrir prófin. Það er nú ekki frá miklu að segja þessa dagana, annað en það að var GEÐVEIKT í Vermont.... við fórum á snjóbretti fyrsta 1 og hálfan daginn. Gékk frekar brösulega fyrst hjá mér, en þetta koma alltsaman með heita vatninu.... á seinni deginum þá skiptum við yfir á skíði... ehhh já.... ekki svo sniðugt!!! Það tók mig c.a hálftíma að komast niður hálfa brekkuna í PL'OG..... oj.... svo rölti ég niður smá af brekkunni (þ.e hlutann af brekkunni þar sem auðveldari var lokuð svo ég varð að fara aðeins brattari.... það var ekki að fara að gerast) og svo skíðaði ég niður að húsi og bað gaurinn um brettið aftur... og þar átti ég sko heima! Ég hef sjaldan fengið aðrar eins harðsperrur en þær voru vel þess virði! Fyrir utan að skíða, þá fórum við í heita pottinn, elduðum, drukkum heitt kakó við arininn og djommuðum orlítið líka þegar við höfðum orku í það :) of course!

En nú er best að ná sér í annan Twisted.....

Félagi brettagella

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home