Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Vermont.... here we come!

Þá er næstum komið að því.... skíðaferðinni til Vermont!!!! Veiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii....... Nú er ég nær búin að pakka, bara eftir að setja oní íþróttabuxurnar, flíspeysuna, rúllukragabolinn og skíðasokkana en það er allt í þvotti núna. Skíðaúlpan, -buxurnar, -hanskarnir, -gleraugun og -"föðurlandið" eru nottla komin oní + nokkrir bolir og buxur ef maður skyldi vilja lyfta sér eitthvað upp á kvöldin!
Við þríeykið skruppum í Sports Authority í dag til að fænal-æsa ferðina. Keypti ég þessa fínustu skíða/útirvistaúlpu/jakka..... einkarhentugt og ódýrt... ekki nema um 10.000 kr...... Eitt einkarathyglisvert barst augum mínum á leið út úr þessari tilteknu búð. Málið er nefnilega það, að dagurinn eftir Þakkargjörð er stærsti verslunardagurinn í bandaríkjunum, s.s fyrsti dagur jólainnkaupanna. Ekki væri það nú merkilegt, nema hvað allar búðir opna extra snemma..... ég einmitt sagði einhverjum um daginn hvað þetta væri fyndið, hver mundi eiginlega nenna að vakna og fara í búðir kl 7 á morgnana...... sem mér finnst alveg fáránlegt..... en á leið út úr þessar búð rakst ég augun í flyer sem á stóð: The day after thanksgiving the store will be opening at 5:30 am..... já gott fólk.... 5:30 um morguninn!!!!!!!! HVER Í ANSKOTANUM MUN FARA OG VERSLA Þ'A........hvað er að...... djöfull er ég fegin að vera ekki að vinna í þessari búð! Ég mundi kannski hugsa um það ef ég væri enn vakandi þar sem ég væri á djamminu.... að öðrum kosti held ég ekki að ég færi að vakna á svo ósiðsamlegum tíma til að fara að versla. En svo hef ég tekið eftir því í dag að flestar búðir eru að opna um 6....... sem er ekki nema hálftíma seinna en hin búðin og alveg jafn ósiðsamlegur tími..... ég bíð bara með mín jólainnkaup þar til á síðustu stundu eins og vanalega.... ekkert er jólalegra en jólagjafainnkaupastressið.......

Jæja, kominn tími fyrir bólið þar sem við leggjum snemma af stað í fyrramálið..... ég bið bara að heilsa og "sé" ykkur hress og kát eftir helgi!

yfir og út
hildur

p.s félagar, drífið ykkur að fá ykkur skype.... þetta er snilld! Talið við höllu vegna frekari upplýsinga!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home