Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

sukk og svínarí dántán njú jork

Heilir og sælir allir íslendingar nær sem fjær!
Hér er allt að verða kreysí í kosnaningafárinu..... kosningar á morgun! Vonandi verður Bush ekki kosinn aftur! Annars er ég ekki mikið fyrir þetta pólitíkarfár, læt hana Höllu sköllu bara um það! Þessi síðastliðin vika er búin að vera asskoti erilsöm (já ég þurfti sko að fletta upp þessu orði......). Við stöllurnar fórum til NYC á Sunnudag, þriðjudag og svo aftur á fimmtudag en gistum þá hjá Dusan vini okkar sukkabara fram á laugardag. Það helsta sam fyrir daga okkar dreif var "shopping" og svo smá skoðunarleiðangur inn á milli. Fórum m.a í Empire state building, sáum rockafeller center og borðuðum í central park og týndumst svo þar....... Á föstudagskvöldinu var svo djammað í NYC........ fórum við fyrst á Coyote ugly barinn þar sem bargellurnar brugðu skemmtilega á leik upp á barborði ásamt öðrum ónefndum aðilum! Held ég að íslendingar hafi verið um helmingur bargesta á tímabili þar sem að fjöldinn allur af stjórnmálafræði nemum var þarna statt...... Eftir það var haldið á Big Fat Pussycat, þar sem 90% gesta voru svartir (ekkert slæmt við það, annað en maður virkaði hálf gegnsær við hliðina á þeim)! Þar bauð ég Höllu Hrund upp í eina rauðhærða druslu, íslendingadrykknum okkar hérna úti, svona í tilefni þess að við vorum að djamma saman í NY.

Á laugardeginum var svo djammað í New Haven (Connecticut) með fyrrverandi fótboltafólki og núverandi þjálfurum og mökum. Gaman það, svo var gengið óralangaleið á pizza stað þrátt fyrir sárkvaldar lappir nokkurra göngugarpa (mæli ekki með að ganga um NY 2 daga í röð og fara svo í háhælaða skó.... sama kvöld!!!!! það sem maður lætur sig hafa til að líta vel út, össsssss). En okkur til mikillar skemmtunar fengum við ókeypis strip frá einhverri gellu sem var dressuð upp sem "kaþólsk skólastelpa"(Halloween var s.s í gær) og stóð upp á borði í afarstuttu pilsi og hneppti alveg frá skyrtunni, gröðum og gjafmildum drengjunum til mikillar gleði. Eftir þessa skemmtun var svo haldið heim til Söndru þar sem allir gistu vegna óökufærni. Þegar við vöknuðum svo í gærmorgun, öllum til mikillar undrunar var 20 stiga hiti.... CELCIUS...... sjæse.... satt best að segja hefði ég verið minna hissa ef það væri Farenheit (þ.e. c.a -7°C) en viti menn við frænkurnar brunuðum heim (í stuttubuxum og bol af söndru og nýju fínu háhæluðu skónum ;) smaaaaaaaaaaaaaaart!!!!) og grófum upp stuttbuxur og boli og drifum okkur á fótboltaleik....... og já, ég fékk lit...... er með fallega rautt far eftir bolinn ;) Veiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii

Jæja, best að fara í háttinn núna ef ég ætla að reyna að vakna á æfingu kl 6 í fyrramálið.... :S

Hafið það sem allra best félagar og aðrir

Félagi Hildur

p.s halla var send með "eilítið" handa ykkur félagar, eins gott hún hafi komið því til skila! Kannski hún hafi gleymt því þar sem alkahól magnið var vel yfir leyfilegum mörkum......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home