Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

miðvikudagur, október 20, 2004

Óskastund

Vildi bara vera fyrst að óska Hafdísi minni til hamingju með 23.ára afmælið! Og ekki má gleyma útsriftinni á laugardaginn, en þessi dugnaðarforkur er nú að fara að útskrifast úr sálfræðinni á undan okkur hinum nördunum! Hlakka til að fagna með þér að hætti sukkabara og gefa þér útskriftargjöfina, sem er auðvitað árskort í keilu og tveir kassar af tequila!!
Langaði líka til að óska Lindu til hamingju fyrir að eiga flottasta (uppblásna) kall í heiminum, Höllu með titilinn ungfrú stjórnmálafræði.is, Arndísi fyrir það að vera sú eina af okkur sem er flutt að heiman (algjörlega) og Hildi fyrir að halda uppi heiðri sukkabara í útlandinu!!
Var í eitthvað í svo miklu hamingjuóskastuði!!!
Kveðja úr sveitinni, félagi Harpa

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home