Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

þriðjudagur, júní 29, 2004

Hæ hó og jibbí jiej og jibbíííí jeij það er kominn 29.júní!!!!

Í tilefni þess að fæðst hefur nýr heiðursfélagi Sukkabs og sökum þess þá lustu niður í höfup mér tvær stökur í tilefni þess (ég bara ræð ekki við þetta þetta bara kemur þegar það kemur, en ef pressa er á manni þá lokast allt....) En Hinni núna færðu allavega ljóð (seint er betr' en aldrei):

Með herðar breiðar
Á stundu neyðar
tekur við tárum
og heldur frá hárum

Þegar babb er í bát
Er við föllum í grát
þá hringt er til Hinna,
hann sárum mun linna.

Hugleikur þakkar áheyrnina og minnir á þann gleðidag sem dagurinn í dag er, en fyrir einum 23 árum fæddist hér á landi afar fallegt og einstakt barn sem í dag skemmtir fólki með vísum. Hefur því verið slegið fram að barn þetta sé öryrki mikið (þ.e ÖR - YRKI.... a.k.a sá sem er fljótur að yrkja) en dæmi hver um sig.

En hvað um það, bara rétt í þessu.... veit hreinlega ekki afhverju, laust þessari niður. Það er bara allt að gerast hérna:

Í dag er í garð genginn
dagurinn sá
er var ég í heim þennan fengin(n)
móður minni frá

og hana nú!

Njótið vel

Hugleikur öryrki

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home