Á morgun skemmti ég mér trallalalala!!!!!!
Þá fer loksins að líða að þessu...... þetta er búið að vera langþráð helgi :)
Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:
Föstudagur:
Helmingur sukkabs leggur af stað eftir vinnu.
Hinn helmingurinn kemst ekki fyrr en eftir tónleika fokking stjörnusiglara djöflanna.... og vonandi verða Sukkabarar ríjúnætaðir í fyrsta skipti í rúma 5 mánuði fyrir miðnætti, ef ekki tú bad!
Síðan verður bara djammað fram í morgunsólina í pottinum.
Laugardagur:
Er sukkabarar vakna (býst ég við að sumir munu vakna fyrr en aðrir.... nefni engin nöfn) verður bara tjillað í pottinum og slappað af. Síðar verða grillaðir gómsætir borgarar a la Sukkab, eða sukkaborgarar, svona í tilefni dagsins.
Búist er við gestum og gangandi í kringum kvöldmatarleytið,þeir sem vilja grilla með geta komið með hráefni á grillið (þar sem að félagar eru allar gáfukonur miklar og stúdera námsbækurnar eru peningarnir frekar limitaðir, því miður!!!) en betra væri að láta okkur vita fyrirfram hverjir það væru svo hægt sé að gera ráðstafanir. Þeir sem eigi vilja eta, geta farið að velta inn svona upp úr kvöldmat (eða hvenær sem það hentar hverjum og einum)!
Þegar þarna er komið við sögu munum við halda á vit ölanna og mun gleðin óma í dalnum (eða skóginum).
Sunnudagur:
Ég held að skila verði bústaðnum upp úr hádegi..... úpps!!!! En þá mun Arndís bara vera skipuð sem formaður vakningarnefndar og sér um að vekja fólk. Tekið verður til og staðurinn yfirgefinn.... með minningarnar og myndirnar í farteskinu.
Svo virðist sem Sukkabarar eigi sér marga góðviljamenn og konur og hefur Sukkhátíðin mikla valdið mikilli kátinu meðal þeirra. Hafa væntingar um mætingu farið fram úr björtustu vonum og búist er við miklu margmenni (en á þó eftir að fá staðfestingu þannig að PEOPLE PLEASE LET US KNOW......). Eina vandamálið er, auðvitað eru allir velkomnir, en svefnpláss eru af skornum skammti þannig að þeir sem huga að af gista (sem við mælum eindregið með þar sem að það er bannað að vera edrú á þessari hátíð) verða helst að redda dýnum + svefnpoka. Ef einhverjir hafa áhuga er ábyggilega hægt að koma með tjald, en ætli það sé nokkuð nauðsyn (reyndar hef ég ekki séð bústaðinn þannig að ég hef ekki hugmynd um stærð hans).
Allavegna, þeir sem vilja koma VERÐA að staðfesta hjá félaga Sukkabara helst í dag eða á morgun.
Þangað til næst
Félagi Hugleikur

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home