Afrakstur helgarinnar .....
Held að það sé komin tími til að orðabókin skilgreinir orðið Heiðursfélagi bjórfélags Sukkabs:
Heiðursfélagi er einhver sem hefur sýnt mikla fórnfýsi, framkvæmt hetjudáðir eða ráðið snilldarlega fram úr vandamálum félaga sukkabara. Skal sá sem hlýtur þessa nafnbót geyma titilinn til æviloka nema öllum félögum kemur saman um það að svipta eigi aðila nafnsbótinni.
Eftir að hafa rætt málin við félagana í gær komumst við að þeirri niðurstöðu að
ákveðinn aðilli hefur unnið sér inn fyrir titlinum ,,heiðursfélagi". Er mér því sönn ánægja að tilkynna okkar nýja heiðursfélaga, hann góðfélaga minn Hinrik Arnarson.
Það sem þessi maður hefur fram yfir aðra sem lengi vel hafa reynt að hljóta þessa nafnsbót er að maðurinn hefur óvenju breiðar axlir. Upp á síðkastið höfum við félagarnir þurft mikið á þessum öxlum að halda og er titillinn því manninum sæmandi.
.. en nóg um það, helgin var nú frekar skrautleg og toppaði ég þetta þegar ég skellti mér á línuskautanna. Finnst mér fátt skemmtilegra en að klífa hæstu fjöll, skella hjólunum undir mig og láta vaða. Var ég komin á svona fína ferð og aldrei farið hraðar er einhvert fólk þurfti að þvælast fyrir mér, ekkert mál ætlaði nú bara að bremsa en bremsan er því miður eitthvað biluð svo að ég steyptist á andlitið eða meira svona augað. Ekkert að gera í þvi nema að hringja í doktorinn(arndísi) sem skipaði mér að setja spritt á allt heila klabbið, skemmtu við okkur konunglega yfir þessu öllu og ákváðum síðan að skella okkur á slysó. Þar fengum við nú þessa fínustu móttöku, ferðin var nú samt toppuð þegar ég sagði hjúkkunni að við hefðum sett spritt á allt saman og taldi hún okkur bilaða. Held ég að arndís hafi vart náð andanum yfir hlátri þegar hún vissi hvað hún hefði gert. Orðin hennar fyrr um kvöldið "nuddaðu bara sprittið vel í þetta" höfðu sem sagt ekki gert góða hluti.
Tók ég mér nú frí frá vinnu í dag þar sem ég get vart opnað annað augað...
Allir hafa sínu slæmu hliðar og á það nú vel um mig :)
Kveðja félagi Linda

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home