Raus um allt og ekkert......
Eitt sem ég skil ekki hvað manninn varðar......... þráhyggjan varðandi útlitið....... allavega náði hún mér í gær.... :( þannig var mál með vexti að ég komst ekki á æfingu í gær og fann mig því knúna til að gera hinar ýmsu leikfimisæfingar heima hjá mér....... Í dag fæ ég að gjalda þessa hégóma með illu!!!!!!! ég geng um í keng og haltra því ég er að drepast úr harðsperrum í maganum og er með eitthvað bévítans tak aftan á kálfanum. Þetta er ekki gott, má ekki láta hégómann ná á mér tökum í framtíðinni.
Fórum við sukkabarar í afmæli til Binna og Magga í gær og var þar kátt. Vil þakka þeim kærlega fyrir góða skemmtun og góðar veigar........
Reyndar erum við Hildur aka Hugleikur sveittar þessa dagana að halda uppi heiðri Félaga Sukkabara út um allan bæ........ ekki veit það á gott þar sem við erum í bjórfélagi og því getur það verið strembið á köflum......... Við hlökkum því til að fá hina sukkabarana heim sem og að fá hina sem heima eru til liðs við okkur.
Gaman að segja frá því að næstu helgi er ég og Petersen að fara vestur í fyrstu útilegu sumarsins!!!!!!!!! jibbí kóla og ekkert annað. Við erum að fara á Arnarstapa þar sem við ætlum svo að tjalda og jafnvel að klífa jökulinn með snjóbretti á öxl og fara svo til eina salíbunu........ Alla sem langar eru að sjálfsögðu velkomnir!!!! Ég fór einmitt síðasta sumar og var það asskoti gaman bara.
Ætla ekki að rausa mikið meira um ekki neitt þannig að þar til næst kveð ég að hætti sukkabara
...............
Yfir og út....
Félagi Dísi

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home