Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

þriðjudagur, apríl 27, 2004

3 vikur í brottför........

Jæja, þá er enn ein vikan byrjuð! Ekki tókst mér að vakna í morgun til að fara í gymmið, nei slökkti bara á helvítis klukkunni eftir að hafa snúsað 2var og þá var orðið of seint að fara af stað, endurstillti hana bara og svaf til rúmlega átta!!!! Það gerðist nú ekkert frásögufærandi í vinnunni í dag annað en að hvorki Tillistand né Pica létu sjá sig í dag, en Horvath kom nú samt! Indælis fólk alltsaman. Svo kom einn kall sem vill eitthvað taka mig á deit, hann er svona ábyggilega 50, á sitt eigið fyrirtæki og alles..... hann reyndi fyrir löngu að húkka mig upp með syni sínum sem var OF GAMALL!!!!! Ég skil þetta ekki alveg, þó hann hefði ekkert sexual í huga, hvað í anskotanum hefur svona gamall kall að gera að hanga með "krakka" eins og mér!!! ÉG skil bara ekki tilganginn í því! Ég var kannski soldið leiðinleg í dag, venjulega tala ég við hann en í dag tipplaði ég á tánum meðan hann var þar og gerði í því að vera busy!

Heyrðu, jú, undur og stórmerki gerðust í dag! Ég pantaði loksins klippingu hérna í henni Ameríkunni! Eftir að hafa séð afraksturinn hjá henni Söndru ákvað ég að skella mér á sömu stofu. Á tíma núna á næsta fimmtudag, ég veit ekki hvort ég hlakka eða kvíði meira til!!!! Maður hefur nottla bara heyrt hryllingssögur af klippifólkinu hérna en hárið mitt eins og er er nú bara hreinasti hryllingur þannig að ég trúi ekki að það sé hægt að gera það eitthvað verra!!!!! Biðjið nú fyrir mér góða fólk....... í von um að ég komist lífs af!

Þetta er nú ekki eina "kvíða" efnið hjá mér næstu dagana, en á fimmtudaginn er Lokahófið hjá íþróttafólkinu og á eftir verður svo kallað Senior Night þar sem þjálfarinn tekur seniorana og spendar þúsundum dollara (ekki ykjur) í áfengi handa þeim. Afleiðingarnar eru svo þessi all svakalega ölvun þar sem fólk finnur ekki bílana sína (sem betur fer verð ég nú bara að segja!!!!). Ekki það að ég kvíði fyrir þessu, búin að bíða í marga mánuði eftir ókeypis fylleríi... eða bara fylleríi yfir höfuð! En nei, heyriði á ekki stelpan að mæta í sjúkraþjálfun kl 8 og svo vinna frá 9-19:30!!!!! MAn...... ég er bara orðin of gömul fyrir svona vitleysu..... dagarnir eru nú nógu helvíti langir svona venjulega!!!!! ætli maður þurfi ekki að notast við óeðlilega mikið af koffíni á föstudaginn til að lifa hann af! Já ég er bara komin með í magann strax!

Ég hef nú engar skemmtilegar hnakka sögur að segja, enda ekki mikið um hnakka hér.... bara einhverjir kana nörrar sem vart vita hvað tíska er! Hér halda allir að víðar ísforma gallabuxur og víður T- shirt með séu málið....... Já, það er ekki fallegt!

Kveð ég að sinni
Félagi hugleikur

p.s já núna eru akkúrat 3 vikur og c.a 2-3 klst í lendingu!!!! Ég býst við góðri móttöku á keflarvíkurflugvelli...... rauðu teppi, litlum stelpum með blómum... eða höfum það frekar flotta hönka með blóm.... etc .etc... Arndís þú vinnur í þessu er þaggi... treysti á þig ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home