Rausið
Loksins, loksins er helgin búin. Er ´búin að vera vinnandi og lærandi síðustu 3 vikurnar. Eyddi stundum 30 mín matnum mínum vinnunni í það að læra..... svo slæmt var ástandið orðið. Síðan á föstudag er búið að vera klikkað veður, en þá vann ég frá 9-19:30 og dróf beint heim til að læra. Veðrið varð svo enn betra á laugardeginum, hringdi því í stelpurnar til að koma í göngutúr svo ég gæti farið aðeins út, en þær enduðu í þessum svakalega shopping leiðangri og komu ekki heim fyrr en um 8 eða 9 (með kvöldmatinn minn og var ég gjörsamlega að deyja úr hungri því mátti ekki seinna vænna). En endaði með því að ég steig ekki út fyrir hússins dyr (fyrir utan þær 2 mín sem ég steig út á verund um morguninn og helvítis vespan flaug inn og eyddi ég þar um 15 mín um að reyna að koma henni út......)! Í morgun fórum við á æfingu og var Lilja olnboguð svona svakalega í kinnbeinið að hún er komin með svakalegt glóðurauga..... gellan sem gerði þetta er svona svaka brussa (grunsemdir hafa vaknað hjá fólki að hún sé gay eða bara bæ, og höldum við Rut að hún hafi eitthvað fyrir Lilju sökum ýmissa athafna hennar) og auðvitað nýtti hún tækifærið til að faðma Lilju (N.B VIÐ VORUM 'A ÆFINGU..... MAÐUR SVITNAR 'A ÆFINGUM...... ohhhhh ég fæ bara hroll við tilhugsunina). Eftir æfinguna var ég klikkað dugleg, gerði þvott, setti í heilar 3 vélar, tók til inni hjá mér, ryksugaði og alles..... kl 11 var ég svo búin að öllu. Svo hitti ég Rut og Lilju fyrir utan Dormið hjá þeim og satum við þar í um rúma klst í tjillinu í sólinni! En vildi svo ekki betur til en við erum allar brunnar.... jújú... maður má ekki setjast út í smá tíma! Ég meina það.... en þetta er held ég ekkert alvarlegt, mér svíður ekkert, er bara með klikkað ljótt stuttermabolafar.
Heyrðu ég verð nú bara að viðurkenna það að ég er að verða soldið seig í eldhúsinu. Maturinn um páskana heppnaðist bara svona svakalega vel, við lögðum allar okkar af mörkum: Rut sá um pakkasósuna, og eplin í Waldorfs-salatið. Lilja skar niður vínberin í svona agalega fína litla bita. Sandra gerði kartöflurnar og kjötið. Ég bjó svo til sveppasúpuna og þeytti rjómann í salatið. Lilja sá svo um vínhellingarnar (að mig minnir)...... Svo hafði sandra búið til þessa líka snilldarinnar ostaköku... hún var sko þumbs upp fyrir það! En allavegna, í gær eldaði ég lax með avacado og steiktu eggplant í eggi!!!! Þetta var bara helvíti gott... át svo restina af laxinum í dag! Ég hef reyndar komst að því að það er ekki auðvelt að sjá um sig sjálfur.... að vera í skóla, vinna nær fúll tæm og þurfa að þrífa og elda oní sjálfan sig!!!! Sérstaklega þegar maður er í nutrition og má ekki jéta hvað sem er!!!!! Þetta er svakalegt alveg..... stundum hef ég ekki tíma til að elda og þá jét ég bara vínber í kvöldmat!!!! Það er bara ekki tími fyrir þetta allt saman. Þó maður hafi ekki fattað það þá, þá sé ég það núna að Hótel Mamma er lang best.... njótið þess meðan þið getið!!!!!! Ég er t.d aldrei komin heim fyrr en um 19:30-20:00 og þarf þá að fara að elda og borða, og svo að læra. Þetta er sérstaklega erfitt þegar maður þarf fara á æfingu kl 7:00 á morgnana!!!!!! Þá er maður bara dauður á kvöldinn!
Nóg um þetta raus...... þarf að ná í þvottinn!!!
félaginn

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home