Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

mánudagur, apríl 19, 2004

LANGUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUR DAGUR (og þar af leiðandi langt blogg :S )

Þetta er nú búið að vera meiri dagurinn. Byrjaði bara svona venjulega eins og hver annar dagur. Vaknaði við vekjaraklukkuna, rétt fyrir átta, en fór nottla ekki fram úr fyrir en rúmlega það. Renndi einu sinni yfir efnið og skundaði af stað í skólann. Veðrið var nú ekki af verri endanum, enda sól og hiti þrátt fyrir að klukkan væri varla orðin nýju. Ég var klædd stuttbuxum og stuttermabol, utanyfirpeysu og puma skóm (og nottla Leyndarmáls nærfötum hennar Viktoríu innan undir… en það er saga sem ekki verður sögð hér). Gékk prófið betur en ég hafði búist við og var miklu fargi þar af mér létt enda hef ég eitt um 3 helgum (og öllum kvöldum síðustu vikurnar) í lærdóm. Var ég svo í skólanum til 4. Þá fór ég og fór í sólbað fyrir utan dormið með stelpunum úr liðinu og tjilluðum við þar í dágóða stund.
Það er greinilegt að sumarið sé að koma því það voru bílar meðfram öllum götum. Fyrir þá sem ekki vita bý ég í 5 mín göngufjarlægð frá ströndinni og er þarna svona park sem að fyllist um leið og smá sólarglæta lítur dagsins ljós (minnirmann soldið á sólarsjúka íslendinga).

Er við lágum þarna í makindum okkar í grasinu koma þar á fleygiferð 2 löggubílar á móti hvor öðrum… þeir snarstansa beint fyrir framan okkur og út hoppa öskrandi löggumenn, þá var einhver gaur á svona fjórhjóli með lítinn krakka aftan á. Þetta var svona óskráð ökutæki sem ekki má keyra á götunum þannig að hann var að brjóta lög. Voru löggumennirnir með ekkert smá mikilmennskubrjálæði og endaði með að þeir sendu eftir dráttarbíl til að taka hjólið. Þetta gerðist allt saman fyrir framan bílinn hjá kærasta einnar gellunar sem voru þarna með okkur, en málið var að hann var lagður ólöglega og glugginn var opin því hann rétt stoppaði við…… en málið með það var nebblega að þar fer fram stundum ólögleg athæfi, og lyktar bíllinn í samræmi við það.

Svo loksins kom heim, klukkan að slefa átta, og ég rétt náði nýja Simpsons. hHlammaði mér svo fyrir framan imban, með flísteppið góða og var reddí að sofna yfir sjónvarpinu sökum krónísks svefnleysis og þreytu undanfarnar vikurnar. Svo er ég er við það að reyna að halda mér vakandi yfir seinni þættinum (oft sýndir tveir þættir í röð, einn nýr og svo gamall á eftir) heyri ég þessi svakaleg sýrenu læti hérna rétt fyrir utan, sem er ekkert nýtt þar sem ég bý í gettói dáuðans, rétt hjá einhverju alræmdu eiturlyfja húsi….. og er maður ekkert að slæpast fyrir utan á kvöldin….. þegar ég kem heim úr vinnunni er ég tilbúin með lyklana og hleyp inn. En allavegna, læti ágerast og tek ég eftir að þetta er hérna beint fyrir framan…. Stekk ég fram úr, þar sem að bílnum mínum er lagt hérna fyrir utan og vildi ég ath hvort ekki væri í lagi með hann. Heyrðu sé ég ekki bara fullt af fólki út á gangstétt hinu megin og fyrsta sem mér dettur í hug var að það hefði einhver verið drepin, eða skothríð…. En það meikaði ekki sens þar sem ég heyrði ekkert soleiðs….. ætlaði ég varla að þora að stíga út en geri það svo, þar sem forvitnin yfrsteig hræðsluna. Er ég kom út fyrir dyrnar sá ég þá þennan svakalegasta eldsvoða sem ég hef nokkurn tíma séð, 2 húsum neðar… og hafði eldurinn borist í húsið við hliðna á því… s.s það var eitt hús á milli mín og eldsins…… SHIIIT!!!!! Hljóp ég inn og hringdi í stelpurnar og fór svo út og hafði Rut í beinni. Þetta var… já þá segi ég VAR 3ja hæða hús og var eldurinn frá toppi til táar, komin út um hliðina og komin yfir í hitt húsið…… það voru án grins 5 slökkvibílar, 3-4 löggubílar og 2 sjúkrabílar (s.s það sem ég sá, en ég sá ekki hinu megin við húsið þar sem að reykurinn var svo mikill). Lætin voru svakaleg og lyktin eins og á versta barbikjúi. Sem betur fer var vindáttin í áttina frá okkur þannig að við fengum ekki mikinn reyk til okkar. Já og bíllinn minn var milli míns húss og þessa húss, en sem betur fer hinu megin við götuna (þar sem ég legg nær ALDREI)….. eins gott maður hafði ekkert planað því ég var lokuð inni af löggu og slökkvibílum.

Svo komu löggumennirnir og settu svona gulan morðborða þar sem folk matti ekki fara innfyrir, en þar sem ég bjó fyrir innan borðan matti ég vera þar……veiiiii ekkert smá svöl! Svo komu slökkvikallarnir að tala við mig ath hvort maður vissi eitthvað. Þarna var einn kall á náttfötum og á táslunum með teppi (s.s kl var orðin um 9 og það var klikkað kalt). Maður fann bara til með kallgreyinu því húsið var gjörsamlega í tætlum. Það var öll blokkin (s.s gatan…. The block) komin út á götu, og er þetta í fyrsta skipti sem ég hitti fólkið í götuni, skemmtilegt það eða…...

Verð ég nú að viðurkenna að þessi atburður vakti athygli mina á slökkviliðsmönnum…. Djöfull eru þeir flottir svona í action!!!! Spennan og hitinn ….. djö!!!! Ég var bara oooon fæeeeer!!!! Þarf endilega að koma mér í kynni við þessa stétt! Seinna um kvöldið kom svo Díana hlaupandi, hún hafði verið einhverstaðar og henni var sagt að það væri kveiknaði í nr 520 sem er sko íbúð í sama húsi og við erum….. Við erum íbúð 518. Svo stóðum við þarna úti stutturunum í um klst og veltum fyrir okkur slökkviliðsmönnnum og þökkuðum fyrir það að þetta var ekki húsið við hliðina á okkur!!!!!

Já skrapp aðeins út aftur til að tjékka á þessu, eldurinn er að mestu slokknaður og eru bara nokkrar hræður úti að horfa. Sjúkrabörurnar eru enn auðar fyrir framan húsið okkar… það er nú gott. Svo eru fréttirnar akkúrat á núna, og sagði þar að allir 5 íbúarnir hefðu komist út heilu á höldnu

En nóg um það…... ég steingleymdi að ég væri að deyja úr þreytu….. best að fara að halla sér…. Langur dagur framundan!

Yfir og út
Sprautan

p.s leyndi aðdáandi ef þú ert slökkviliðsmaður (vona að þú sért allavegna karlkynns ;) þá endilega hafðu samband!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home