Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

föstudagur, apríl 23, 2004

Jói Api og Vörðurinn

Meira hvað dagurinn í gær og í dag voru afkastamiklir. Fór í Wallmart í gær og pantaði tíma hjá augsa og keypti þar svaka Swiffer tryllitæki, s.s moppa sem er með batteríum því hún spreyjar sápunni á undan sér og svo skúrar maður bara.... engin fata eða blöndun eða neitt..... maður bara skúrar!!!! Svo kom ég heim og setti tækið saman... audda varð maður svo að prufa! Baðherbergis gólfið verður nebbelga alltaf svo skítugt fljótt (það eru nottla 5 manns að nota það á hverjum degi..... :s ) nú sé ég bara fram á reglulgegar skúringar þar sem mér finnst svo gaman af svona tryllitækjum. Nóg um það, svo fór ég í dag til New Haven og keypti miðann heim... s.s það er komið á fast, fer heim 17 og þar af leiðandi kem heim 18 Maí..... jeijjjjjjj Svo komst ég að því að IRS er með skattastofu nokkrar mínutur í burtu frá mér (hefði getað sparað mér mikið stress með að vita það fyrr) en það var einhver villa á skattaskýrslunni í fyrra og þetta er búið að taka svo langan tíma en loksins gékkst frá því í dag.... þar losnaði ég við um 100 kíló af áhyggjum. Svo náði ég í um 200 dollara tjékka sem ég frétti um daginn að ég ætti upp í skóla en hafði ekki hugmynd um afhverju..... ég veit ekki enn.... en ég ákvað ekkert að þræta fyrir það og fór bara og sótti monningana...... ekki slæmt það!

Heyrðu já, gleymdi að segja frá sæta bankastráknum sem vinnur í Peoples bank rétt hjá vinnunni minni... hann er frá Póllandi og er búin að vera hér í 9 ár!!!! Ég hef núna hugsað mér að hætta eða minnka netbankann og fara bara í alvöru bankann... svona upp á mannlegu samskiptin!!!!!

En já, ég var´i gær að reyna að laga tölvuna mína, hún er alltaf í einhverju fokki! Fór í gegnum nær öll helvítis folderin..... og þau voru slatti mörg. Þar var eitt folder frá henni Lilju, s.s frá þeim tíma sem tölvan hennar var biluð í fyrra. Sá ég þar einn fæl sem vakti athygli mína, hét hann Jói Api og Vörðurinn!!!! Eitthvað rámaði mig nú í þetta þannig að ég opnaði skýrsluna, og sá ég þá þessa steiktustu sögu sem ég hef nokkurn tíma séð (og co-samið, sem sagt Lilja á líka heiður af þessu, ef heiður má kalla). S.s man ekki hvenær, hvar eða ahverju en rámar samt í gerð þessarar sögu, okkur hlýtur að hafa leiðst alveg rosalega og verið á einhverju steiktu flippi með aulahúmor dauðans. Ég er sko komin með six-pack af hlátri! Hér er sagan:


Jói Api og Vörðurinn

Einu sinni var api sem að hét Jói. Hann bjó í dýragarði. Dag einn kom Siggi ljón til Jóa apa og sagði: “ ég gef þér 3 banana ef þú klifrar yfir girðinguna og prumpar framan í vörðin”. Jói api klifraði yfir girðinguna og gékk rösklegum skrefum til varðarins og sagði: “Vörður ég ætla að prumpa framan í þig”. “Nei, talandi api” sagði vörðurinn furðulostinn. Jói api hoppaði upp og prumpaði framan í vörðin. Vörðurinn stóð eftir furðulostinn þegar Jói api hoppaði aftur yfir girðinguna og sagði við Sigga ljón: “wazzup!!!!!” og Siggi ljon sagði Wazzuuuuuuuuuuuup og jói api sagði Wazzzuuuuuuuuuuup og Siggi ljón sagði Wazzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzuuuuuuuuuuuuuuuuuuup!
Siggi Ljón sagði” þá ætla ég að gefa þér þrja banana jói api prumpuvinur minn” og svo prumpaði siggi ljón.


Já svona getur maður verið steiktur...... og við vorum ekki einu sinni undir áhrifum neins ólöglegs né löglegs...... But thats life!

Félaginn

p.s þessi saga verður inklúduð í bókinni sem kemur út í sumar

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home