Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

laugardagur, mars 27, 2004

Allt í háa lofti

Það varð alveg gasaleg sprenging í gær rétt hjá þar sem ég á heima. S.s það var olíuflutningarbíll sem valt á hi-wayinum og sprakk í loft upp rétt hjá exitnum sem ég á heima. Allt í einu í gær heyrði maður þvílíkan hávaða frá sírenum og þyrlum og skildi ekkert hvað var í gangi. Klst síðar fóru ég og Díana (die-diana eins og hún var kölluð) á smá rúnt og lentum í þvílíkri umferðarteppu á leiðinni upp á hi-way við nenntum sko ekki að biða í þessu enda gékk þetta ekki neitt þannig að við tókum bara smá bakleið og fórum tvo exita niður og fórum þar upp. Þegar við komum upp á hi-wayinn sáum við að mótumferðin var gjörsamlega stopp nokkra kílómetra niður. Var ég svo forvitinn að ég hringdi í Rut til að biðja hana að kíkja í fréttirnar en vissi hún þá þegar hvað hafði gerst.... og tjáði mér af vandamálinu. Þannig að þegar við fórum heim ákvaðum við að taka einhverja bakleið en þegar við komum nær Bridgeport þá voru allar leiðir lokaðar í þá átt sem við þurftum að fara..... hundruðir lögreglumanna voru á vappi. Við enduðum á að fara einhverja þvílíka krókaleið en komumst loks heim. Svo í dag þá er nottla hi-wayinn ennþá lokaður þannig að það er engin smá umferði í gegnum bæinn og umferðar teppur allstaðar. Auk þess eru risa hjúmongus trukkar keyrandi út um allt (það er ekki vanalegt innan bæjarinns)!!!! Þetta er allt hið skringilegasta mál..... nú er búið að varpa því fram að þetta hafi átt að vera hriðjuverk, auk þess var miðbæ Bridgeport lokað í dag sökum sprengjuhótanna!!! En ekkert gerðist og ég er enn á lífi!!!!
En svona er lífið bara í US!!!!!

Félagi hugleikur :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home