Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

fimmtudagur, mars 25, 2004

Dísa skvísa 22 ára..

jæja dísan okkar bara orðin 22 ára.
Innnilega til hamingju litla ógeðið mitt með þennan áfanga, já og meðan við erum að tala um afmæli vil ég minna á að ég er næsti félagi til að eiga afmæli, eða þann 13 apríl.

Verðum við félagarnir að finna gjöf handa doktornum, þar sem fátækir námsmenn eiga ekki margan túskildingin hef ég fengið þá hugmynd að við göngum í hús og þykjumst vera að safna dóti á tambólu (getum dressað Höllu upp í krumpugalla og með tígó og hún ætti nú að geta leikið 12 ára stelpu þar sem hún er einn besti leikarinn í okkar vinahóp), síðan einfaldlega finnum við það besta til að gefa stelpunni og hirðum afganginn sjálfar....

Önnur hugmynd var að gefa henni eitthvað hugrænt td láta hildi semja ljóð, láta höllu fara með lítinn látbragðsleik eða fá mig til að mála mynd(kannski af bjór(nei bara svona hugmynd))...
Jæja segið mér nú hvernig ykkur líst á þessar hugmyndir....???
Kveðja, Linda

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home