Hommar eru líka fólk!
Það er alveg skondið hvernig hlutirnir gerast þegar maður hættir að taka kontról og bara leyfir hlutunum að hlaupa í skorðir eins og þeir gerast. T.d í kveld lenti ég í hinu skrítnasta partý sem ég hef nokkurn tíma lent í, og skemmti ég mér hin konunglegasta. Kvöldið byrjaði nú á því að ég var búin að vinna kl 19:30 og fór yfir Main Street (bara beint hinum megin við götuna) til Söndru því hún var að vinna eins og ævinglega á Föstudagskveldi. Mér til mikilla ama var búið að taka sætið mitt og þurfti ég því að koma mér fyrir hinum megin á barnum, en þar var kunningi (svona um 6-tugt) frá Noregi sem var svo glaður að hitta Islendinga að hann bara hætti ekki að tala. En eftir að hafa setið þarna hjá Söndru í svona c.a 2 klst (og fengið nokkra bjóra í kaupæti, bæði frá Söndru og kunningjum mínum á barnum ;) sá ég fram á það að ég var ekki að fara að keyra bílinn heim. Bað ég Díönu því að koma að sækja mig, en með því fylgdi það skylirði að koma í partý. Well, ég var nú enn í vinnu fötunum en þar sem að ölið var farið að segja til sín gat mér ekki verið meira sama. Við skunduðum í þetta party, þrátt fyrir að ég þekkti engan á staðnum, gat bara ekki staðið meira á sama. Er við komum á staðinn voru þar svona 7 manns, allir fínir í klæðunum..... var þar einn gaur sem greinilega spilaði með hinu liðinu...... MJÖG GREINILEGA!!!!!!! if you know what I mean!!!!! hann vildi endilega hella í okkur Amaretto Margarita.... sem var allt í besta lagi! En svo kom vinur hans, sem augljóslega spilaði einnig með sama liði. Svo komu þar fleiri, og allir voru þeir í sama liðinu, manni leið bara hálf illa að vera mótherji!!!! Ég hef bara sjaldan skemmt mér jafn vel í partýi og þarna, enda þurfti maður ekki að hafa áhyggjur af að hössla eða vera hösslaður (eða forða sér frá slíku, sem oft eyðileggur partý). Hommar eru bara hið skondnasta fólk, hef ekkert nema gott um þá að segja, nema: "you go girl"! En, s.s komst á heil og höldnu heim og ætla bara að fara að sofa núna......... enda búið að vera langur og strangur dagur hjá mér!
Góða nótt
Hildur
Góða nótt
Hildur

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home