Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

mánudagur, febrúar 14, 2005

well well..............

Jæja kæru félagar,

Mér skildist að það væri verið að skjóta á ákveðna sukkab meðlimi vegna óstjórnlegrar leti við bloggskrif en ákvað að taka skotið ekki til mín þar sem ég á heiðurinn af að minnsta kosti tveimur færslum, ef ekki þremur!!

Nú er maður á fullu að kenna í MH og ég vildi benda ykkur á að allar upplýsingar um geðklofa getið þið nálgast hjá mér þessa dagana. Get komið og haldið fyrirlestra fyrir sanngjarna greiðslu........ Eða ekki!!

Ég ætlaði svona að athuga hvernig staðan væri á félögunum á fimmtudag eða föstudag. Er Harpan ekki á vatni Lauga fram á föstudag eða hvað? Var að spá hvort ég ætti að reyna að reka fólkið út og bjóða ykkur í léttan mat eða hvort við ættum að kíkja á kaffihús eða eitthvað. Tjáið ykkur nú!!

Heyrumst,
Hafdís the teacher.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home