Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

sunnudagur, janúar 23, 2005

yfirnáttúrulegir hæfileika og ýmislegt annað...

Það er allveg augljóst að fólk býr yfir mismunandi hæfileikum. Tökum mig sem dæmi: ég er til dæmis sérstakalega léleg í stafsetningu (t.a.m. féll ég á stúdentsprófinu í stafsetningu í Kvennó ásamt Gaua og lesblindu krökkunum) en það sem ég fékk í staðinn er náðargjöf frá guði, að vera með ótrúlegar tær. Í gegnum tíðina hafa tærnar mínar verið mjög umtalaðar, í flestum tilvikum jákvæðs efnis en einstaka sinnum hefur öfund og hatur blossað upp hjá fólki og það gegnið svo langt að segja að þær séu ljótar!!
Listrænir hæfileikar tánna minni leyna sér ekki þar sem ég get glennt þær í sundur, gert split og opnað kók flösku með þeim og tekið sopa. Er ég ein fárra manneskja í heiminum sem hræðist þessi eigi að missa hendurnar þar sem ég get gert nánast allt með tánum. Ég og félagarnir erum stoltir af þessari náðargáfu minni, jafnvel hefur einn félaginn ekki staðist mátið og sleikt á mér tærnar í virðingar skyni.
Ég trúi því að allir búi yfir einhverjum yfirnáttúrulegum hæfileikum, sumir hafa uppgötvað þá en margir sem þora ekki að finna þá í vegna þess að þeir eru hræddir um að það sé ekki það sem þeir óska eftir (til dæmis að þeir séu ekki Jesús eða eitthvað þess háttar).
Ég hvet alla sem þetta lesa til að reyna að finna sína hæfileika þar sem það getur reynst vel að geta notað þá (jafnvel þó það sé ekki nema til að fá fólk til að brosa).
Hér með efni ég til yfirnátturulegrar hæfileikakeppnis Sukkabs..(dagsetning og staður kemur seinna)..þangað til verið duglegar að æfa ykkur. Ef einhverjir fleiri vilja vera með endilega leggið inn komment.
Ykkar, Linda


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home