Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Temperature: -8¨C, feels like: -19°C!!!!!!

Guten tag meine freunde! Eða hvernig þetta hljómar nú.... Jæja, maður er loksins búinn með loka prófin :) víííííí.... Enn ein skóla helgin búin og bara 5 helgar eftir. Já lífið er sko ekki búið að vera dans á rósum síðan ég kom út aftur. Byrjaði á því að redda glósum fyrir tímana, en það fór nú svo að ég fékk ekki glósur fyrr en á föstudeginum fyrir laugardagstímann. Það var komið soldið stress í mallakútinn en þetta reddaðist allt saman. Fékk ein 100 stig á prófinu! Já, svona er maður klár ;) En ekki nóg um það heldur þegar ég labba inní skólastofun á laugardagsmorgninum og reddí í testið kallar kennarinn í mig: "Miss Hildur! You are in big trouble", fyrst hélt ég hann væri að grínast, og ég spyr með bros á vor "nú hvernig þá?". Þá segir hann: "You were supposed to take the exam, the last day to do it was yesterday. I dont know what to do with you, you are missing a grade". Ég fékk alveg hland fyrir hjartað og "ha, próf nr 2? Nei það getur ekki verið því að ég tók það áður en ég fór til Íslands". En nei, hann var ekki með það, og kellingin sem sér um deildina og sat yfir mér hún sagði bara: hvar varst þú, þú áttir að taka próf hjá mér? WHAAAAAT..... þannig að mér leið eins og versta lygara að reyna að sannfæra þetta fólk að ég væri búin að taka prófið! Það var leitað og leitað en það hafði bara gufað upp. Þannig að það var ekkert annað í málinu en að taka helvítis prófið aftur. Þannig að eftir fyrra prófið þá brunaði ég heim, var heppin að finna glósurnar i heilu lagi. Brunaði til baka, las yfir í c.a 2 klst og tók svo prófið.... ég var alveg brjáluð.... þetta jók stressið hundraðfalt!!!!! En þetta endaði allt vel, fékk 98 á því prófi þannig að ég fékk A í kúrsnum!!!! :) Ekki kvarta ég yfir því. Þegar ég kom heim var ég svo úrvinda að ég lagði mig til 9 um kvöldið :) En allavegna, það er gott að vera búin. Nú er bara ein önn eftir af þessu námi, svo er bara að bíða og sjá hvort maður kemst einhverstaðar inn næsta haust!!!!! En þangað til þarf ég að leita að vinnu fyrir vorið :) Heyrumst hress og kát á skype..... ;)

hasta la vista beibí

Hildur

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home