Vitiði hvað..... í vinnunni er í gangi á föstudögum svokallaður vínpottur (til skiptis hvít og rauð að mér skilst) og í fyrrasumar var ég svo stutt að hann var í sumarfríi allan tímann en í dag kom hann úr sumarfríi, enda við hæfi þar sem komið er fram í september. Ég fékk númerið 25 og tóku þátt held ég c.a 20 manns í þetta skiptið og um 3 fjarverandi þannig að það var bara asskoti góð þáttaka. Þessum 20 flöskum var svo skipt í 6 ðea 7 vinninga, þar sem potturinn var 7 flöskur og næsti vinningur 4 og svo koll af kolli þar til flöskurnar voru búnar...... Svaka spenna er búin að vera í mannskapnum í dag og voru svo allir saman komnir uppi til að vera viðstaddir dráttinn..... Svo er byrjað að draga pottinn, 7 flöskur, ég stóð bara þarna svona utan við og var meira að virða fyrir mér þessar fallegu flöskur heldur en að fylgjast með.... en viti menn..... haldiði ekki að félagi sukkabari hafi ekki bara fengið blessaða pottinn...... enda fannst mér það algjörlega við hæfi, í fyrsta drætti í fyrsta drættinum..... maður gæti haldið að lukkan væri eitthvað farin að snúast í kringum mann ;) ha!!!!!! En allavegana félagar, ætli það verði ekki hvítvínsboð á næstunni ;) En nú er komin tími til, eins og góðvinur okkar Brynjar lagði til, og förum að standast undan kröfum aðdáenda okkar og virkjum síðuna! T.d ef einn sukkabari skrifar eitthvað einu sinni í viku þá koma póstar a.m.k einu sinni á dag, 6 daga vikunnar, svo er hægt að hafa svona "open mike night" þar sem þeir sem vilja koma einhverju að gera það!!!!! En verð að halda áfram að vinna, ætli maður opni bara eina núna.... og sötri á í vinnunni!!!! þangað til næst.....
|
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home