Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

föstudagur, maí 07, 2004

Held bara að þessi síða sé ..

farin að skapa handa manni atvinnutækifærum. fékk ég eftirfarandi sent í pósti:

Kæra Linda
>
> Dagana 10-12 júní verður haldin stór og voldug norræn kvennaráðstefna hér
> á
> Íslandi þar sem fjallað verður um allt milli himins og jarðar. Okkur sem
> erum í
> undirbúningsnefnda ráðstefnunnar langar til að bjóða upp á 10 mínútna
> ljóðalestur
> í hádeginu (á íslensku og/eða skandinavísku) sinn hvorn daginn - Vilborg
> Dagbjarts
> ætlar að vera fyrri daginn - ert þú til í að lesa fyrir okkur seinni
> daginn?
>
> Dagný
>
> Dagný Kristjánsdóttir, Dr. Phil.
> Prófessor


Þessi prófessor hefur sennilega tekið eftir voldugum skirfum á þessari síðu okkar og haft samband við mig..??? Takið líka eftir því að hún vill: eða á skandinavísku.. tja kannski maður taki bara eitt eða tvö ljóð á dönsku.

Innst inni efast ég nú reyndar um þetta, svo að ég svarði henni eftirfarandi:

Þó svo að ég sé hagyrðingur mikill og mörgum manninum finnst gaman að hlýða á mín tilþrif,
held ég þó að þú hafir netfangið hjá rangri Lindu.
Kv, Linda V.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home