Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

föstudagur, maí 07, 2004

Vinaleysið er skollið á

Já það var mikið um sorgina í kvöld..... Vinir eru búnir.... það kom þá að því!!!!!!! Alveg svakalegt hvað þetta var dramatískt! Og ekki lét kökkurinn á sér standa..... næstum jafnslæmt og þegar ég, Arndís og Ásta Ben sátum og horfðum á Armageddon hérna um árið.... það voru nú meiri vatnsfellingarnar þar! Þetta var 2 klst þáttur, þar sem að fyrsta klst var nottla svona samantekt héðan og þaðan! Þetta er búið að vera þema vikunar og búið að gera svona 100 þætti á hverri sjónvarpstöð (sem eru margir tugir) um þennan lokaþátt eða lokin yfir höfuð. Þeir urðu svona milljón sinnum vinsælli fyrir að hætta. En ég er bara alveg miður mín..... þett' er búið, þett' er búið!!!(hristihaus)

Á morgun er síðasti vinnudagurinn... veiiii! Klikkað gaman:) svo lærir maður bara frá sér allt vit næstu vikuna, rumpar þessum prófum af og drífur sig heim!!!! Komin tími til þess held ég bara. En annars var ég að fá þær svakalegu fréttir að það væri einhver helvítis kuldi þarna uppfrá, ef svo er held ég bara seinki heimkomunni aðeins. Hitinn loksins farin að láta á sér kræla hér, ströndin farin að hitna og trén farin að blómstra!!! Voðalega fallegt alltsaman.

En best ég komi því líka á framfæri að þó ég sé komin heim þá er ég ekki búin í skólanum, þarf að taka 2 próf heim. Fékk smá díl til að komast heim, en þarf samt að klára. Sökum þess verður maður aðeins hvíla ölið fyrstu vikurnar (audda tekur maður heimkomu djamm og svo sukkhátiðina) en svo verður tekið betur á því restina af sumrinu og langt fram á haust ;) Enda verður þetta langt og strangt Sukkabsumar.

Hugleikur

p.s Arndís ertu komin með matseðil fyrír hátíðina? Kípaðu okkur pósted hvernig gengur!!! Ef ég fæ einhverju ráðið þá mæli ég bara með kókapöffsi, gott sem nasl og máltíð! Og mjög gott ef maður er eitthvað þunnur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home