Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

fimmtudagur, apríl 08, 2004

Skítur út um allt

Djöfull er maður skítugur...... það er nú meira! Er með drullu upp fyrir haus.... var nebbla að koma af æfingu og var komin út kl 6:45 í morgun (aldrei þessu vant var ég mætt snemma á æfingu því að seinkunar álög Lilju hvíldu eigi á mér...... en svo fór ég og náði í þær á miðri leið, þannig að þær náðu stúlkukindurnar). En áður en ég fór út ákvað ég að klæða mig vel, þar sem að oft vill vera kallt svona snemma á morgnana, en viti menn það var drullu heitt og endaði ég með því að taka 2 af 3 peysunum af, hattinn og flísvettlingana! Það var svakalegur spenningur í morgun að fara á æfingu enda var ég að testa hnéð, hef ekki spilað í nokkrar vikur (já s.s bloggið sem eyddist áður en ég postaði það var einmitt um meiðslið mitt á hnénu). Ég var nú út alla æfinguna en fann soldið til í hnénu, mest bara svona anojing pein en bara er bara aumur og er ekkert að taka of mikla áhættu, bara leiðinlegt að geta ekki komið sér í almennilegt form :S

Já var að tala við hana Söndru og við erum að fara halda íslenska páska saman mar... klikkað gaman! En mér líður ekkert eins og það séu að koma páskar! Ég fæ ekkert frí, er að vinna í dag og á morgun (s.s fim og fös) svo er ég í skólanum á laugardaginn og að keppa og svo er nottla sunnudagurinn frí og svo fer ég í vinnuna á mánudaginn!!!! ÖMURLEGT!!!!!! Ég væri ýkt fúl en ég fékk Nóa Sirius nr 6 þannig að ég er alveg sátt... sit hér og stari á það á hverjum degi og hugsa mér gott til glóðarinnar á sunnudaginn! Við ætlum að reyna að redda okkur íslensku lambakjöti (Frétt af búð hér rétt hjá NY sem selur svoleiðis)...... væri það ekki mergjað! En nú er Díana eitthvað fúl því að hún er að bjóða fólki heim og ætlar að halda slóvakíska páska og vill að ég sé þáttur í því en ég vil bara vera með mínum íslendingum og þá fór hún í fýlu!!!!! Ég skil ekki afhverju allir útlendingar fara svona mikið í fýlu....... Bara helvítis fýlupúka pakk!
En jæja vildi bara aðeins láta heyra í mér þar sem að allt er dautt hér á blogginu um þessar mundir, hafði smá dauðan tíma milli æfingu og sjúkraþjálfunar en nú er ég að verða sein þannig að ég ætla að skunda

Adios

Heilagur hugleikur

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home