Lögbrjótur og tugthúslimur
Hvurslags önnur og endemis hringavitleysa. Í gærkveldi vorum við stöllurnar bara í sakleysi okkar að keyra frá JFK í New York...... búnar að setja disk í spilarann og reyndum að ýminda okkur að við værum enn að keyra í ORlando (sem er mjög erfitt því að NY er ekkert smá ljót miðað við Florida, sérstaklega göturnar sem eru dekkjakillerar dauðans). Við erum bara að krúsa svona í rólegheitunum, á svona 60 mílnahraða þegar líða fer að fylkja mörkunum tökum við eftir því að löggan blikkar svona skemmtilega fyrir aftan okkur!!!!! Maður fékk bara hland fyrir hjartað, fyrsta sem ég gerði var nottla að líta á mælinn en jújú var á löglegum hraða! Heyrðu hafði þá ekki annað framljósið dáið og hann bara gaf okkur miða á staðnum, og sagði að ef við myndum laga þetta innan 24 klst gætum við bara mætt fyrir rétt og plítað okkur not guilty og þá ætti allt að vera í góðu. S.s ég fékk tilskipun að koma fyrir rétt þann 23.mars kl 9:30 stundvíslega til að fá sýknu!
En þetta er ekki búið enn. Svo vildi til að löggan þurfti að signa eitthvað blað innan þessara 24 klst til sönnunar um að þetta hefði verið lagað, en lögreglan hér vildi ekki signa blaðið þar sem það var gefið út í NY (N.B var rétt hjá fylkjamærunum)! Þannig að ég náði ekki til NY á tilsettum tíma... svo nú er bara að bíða og ´sjá hvort manni verði fleygt í jailið!!!!!! :S
Kaninn er nú alveg klikk....... það eitt er víst, svona ykkur til gleðitíðinda, að ég mun ekki koma til með að ná mér í mannsefni hér :)! Það er alveg á hreinu, íslenskt já takk!
Heimsflakkarinn

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home