andvakningur
Nú er klukkan orðin hálf þrjú.... ég sit hér enn að gera ekki rassgat! Ekki búin að læra eins og ég átti að gera, en samt er ég vakandi og þarf að vakna eftir 3 klst! Þarf nebblega að sækja stelpurnar kl 6 svo við getum farið á Dunkin Donuts til að fá eitthvað koffín í líkamann. Svo þarf að fara í bankann og taka bensín. Ég ákvað að taka sturtu núna því ég veit að það á eftir að vera erfitt að vakna eftir þennan nap. Þar sem að koffínvíman er enn til staðar ákvað ég bara að fara að laga á mér táneglurnar, því þær verða nottla að vera fínar þegar maður fer í sandalana. Reyndar var frekar erfitt að hylja svörtunöglina, en eins og gengur og gerist meðal knattspyrnufólks (allavegna kvenna, hef reyndar aldrei heyrt karlmenn kvarta yfir þessu leiðinlega vandamáli) að neglur blána og detta af með reglulegu millibili. Ég er búin að búa til kaffíndrykk morgunsins, orkuteið góða sem hefur komið manni í gegnum margar próftarnirnar og erfiða daga. Setti drykkin svo við rúmið þannig að þegar ég vakna þá get ég gripið til 'ans og fengið mér gúlsopa. Þá verður sko ekki erfitt að djömpa fram úr rúminu, eða dýnunni frekar... þetta er nú ekkert rúm sem ég á, ekki enn! Já mar... Fænal kántdán komið í fóninn.... Arndís: this is for you baby! yeah.... Shit mar, fæ bara flashbakk til samræmduprófana og lok 10 bekks..... rosalega er orðið langt síðan.... '97! Þetta er síðasta niðurtalningin..... lalalalala!
Jæja, nú er hún sko bara að verða 3 og ég ætla nú bara að leggjast til hvílu í von um að geta komið dúr á auga......
Félagi Heimsflakkari
Jæja, nú er hún sko bara að verða 3 og ég ætla nú bara að leggjast til hvílu í von um að geta komið dúr á auga......
Félagi Heimsflakkari

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home