Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

föstudagur, mars 05, 2004

bjórklúbburinn Sukkab sem sértrúarsöfnuður....

.. eftir að hafa skundað um á síðum vísindavefsin rakst ég á grein um hver skilyrðin eru fyrir því að stofna sértrúarsöfnuð. Get ég ekki betur séð en að við gætum stofnað sértrúarsöfnuð úr bjórklúbbnum Sukkab þar sem stendur í lögum:

"Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu." Þetta á vel um okkur þar sem boðskapur okkar er sannur og góður.

"Skilyrði fyrir skráningu trúfélags er að um sé að ræða félag sem leggur stund á átrúnað eða trú sem tengja má við þau trúarbrögð mannkyns sem eiga sér sögulegar eða menningarlegar rætur."
Á þetta vel um okkur þar sem þetta tengist tvímælalaust honum bakkusi, svo veit ég ekki betur en að áfengisdrykkja eigi menningarlegar rætur að rekja í flestum löndum.

Þannig þá er það bara að leggja af stað og skrá okkur sem sértrúarsöfnuð. Ef draumurinn rætist getum við allar orðið biskupar, fáum Ernu heiðursfélaga til að vera páfinn síðan fáum við fullt fullt af sóknarbörnum sem borga tíund af launum sínum til okkar. Sé ég fram á góð ár hjá félögum og kanski er þetta líka mín eina von um að verða tekin opnum örmum af guði (aka bakkusi) þegar ég er tilbúin að fara yfir.

En bless í bili, félagi Linda

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home