Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

þriðjudagur, febrúar 24, 2004

Kveikja í þér leikir?

Sökum tæknilegra vanhæfni hefur mér ekki tekist að "kommenta" á flaggumræðu fröken orðabókar..
En eins og orðabókin benti á eru flöggin MJÖG nauðsynleg í fjölbreytilegu ástarlífi félaga Sukkabara, jah.. og kannski jafnvel ómissandi hjá sumum félögum....(svona svo þetta renni nú bara ekki allt saman í einn graut!!).
Á ferðum mínum hef ég hins vegar kynnst annarri skilgreiningu á sama hlut þ.e. að spilaðir séu deildarleikir fyrir "Íslandslúllerí" og landsleikir fyrir "útlendingalúllerí".....
Jæja, ég legg því til að ráðsettir Sukkabarar fái einnig að spila með og kallist þeirra leikir "heimaleikir"

Jæja aftur..vonandi verður gott mót á næstunni (ekkert að því að spila með!)

kveðja, leikandi léttur félagi Halla

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home