Sælar..
Eftir að hafa verið alin upp í Kvennó við það að heilsa öllum þeim kennurum og skólastjóraembættismönnum sem urðu á vegi manns á göngum skólans þótti mér ekkert tiltöku mál að heilsa einum prófessornum mínum, sem tja reyndar kennir mér í 50 manna bekk. held ég að heilsan hafi gert honum bylt við því að lengi var hann að átta sig og heilsa á móti. Fannst mér þetta nú hið fyndnast mál og deildi frásögn með samnemanda mínum . í næsta tölvutíma tíma tekur daman upp á því að senda mér " vertu ekki svona mikil kennarasleikja " á msn (og eins og þið vitið þá kemur þetta svona blikkandi upp á skjáinn og er fyrir alla að sjá). Hefði þetta verið lítið mál nema það vildu svo til að þessi fyrrnefndi kennari var einmitt að hjálpa mér að leysa verkefni í tölvunni. Sjaldan hef ég orðið eins vandræðaleg og reyndi að leiða augnablikið(þetta blikkar samt ótrúlega lengi) hjá með því að tala um þessi gröf eitthvað áfam. Var þetta þó það augljóst að ekki var hægt að horfa á neitt annað á meðan. Hef ég ekki heilsað þessum kennara á göngum nýja náttúrfræðihúsins síðan þá. Kanski Halla segir okkur frá gagginu bara svona til að halda kennarasögunum áfram.
en verið þið sælar!!
en verið þið sælar!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home