Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

sunnudagur, febrúar 22, 2004

Orðabókin...

..orðið sem ég mun taka fyrir nú að þessu sinni er FLAGG. Veit ég fyrir víst að allir félagar viti hvað orðið þýðir en þegar betur er að gáð er geibilega fókið að skilgreina orðið.
þegar félagar fóru að telja flöggin sín þá held ég að ég hafi aldrei lent í jafn flóknum útreikningum síðan Oddur stærðfræðikennari reyndi að útskýra fyrir mér hvað hyp takkinn á reiknivélunum þýddi. Ekki það að flöggin hafi verið neitt mörg heldur er þetta einfaldalega flóknara heldur en fólk geri sér grein fyrir.

Eru margir þættir sem verður að líta á þegar talið er:
Vissulega er auðvelt að telja Íslendingana þar sem hægt er að kíkja í þjóðskrá eða Íslendigabók, gott ráð er þó að tala við hann þar sem fáir útlendingar eru góðir í íslenskunni. En hvað skal gera ef kauði er tvílenskur, alinn upp í öðru landi en heimalandi, er flóttamaður og á ekkert ríkisfang, ættleiddur eða með tvö eða fleiri ríkisföng(skal þá telja það ríkisfangið sem gefur flagg???) og á að telja slysabörn með?.

Þetta og margt annað þurftum við félagar að hafa í huga er flöggin voru talin og því datt einum félaga það í hug að auðveldast væri bara að telja heimsálfurnar, hef ég nú aldrei lent í meiri vitleysinga vitlausunni þegar það var gert, ekkert lagaðist það... Hafa flöggin ekki enn verið talin þar sem félögum kemur ekki saman um hverjar reglurnar séu, legg ég til að við fáum doktorinn í að semja reglurnar fyrir okkur???

Þar til næst, málfræðingur sukkabs Linda.

ps: ef einhverjir föttuðu það ekki þá er þetta beint skot á einn félagan sem tja... er kanski meiri "heimsflakkari" en við hinar...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home