Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

föstudagur, janúar 30, 2004

Litli anatómistinn kemur með innlegg....

Rosalega líst mér vel á þetta með að reyna að auðga orðaforða félaga sukkabara. Þetta er til fyrirmyndar.
En svona þar sem ég sé ekkert nema heila þessa dagana þá er ekki úr vegi að ég segi ykkur nokkrar skemmtilegar og aðrar miður skemmtilegar staðreyndir um þetta flókna fyrirbæri og tengsl þess við LÚLLERÍ.

Staðreynd 1: krónískir alkahólistar geta fengið svokallað KORSAKOFF heilkenni. Helsta einkenni þess er tap á skammtímaminni. Þessu veldur æxli í corpus mammillare(mikilvægt í Rand-kerfi og varðandi námsgetu og minni).

Staðreynd 2: Unaðsvæðið í heilanum heitir því óæsandi nafni: FASCICULUS TELENCEPHALICUS MEDIALIS.
Þetta er ekki að gera neitt fyrir mig..... nei kveikir ekkert í mér.....

Staðreynd 3: Eins og flestir vita þá snýst sú mynd sem er í sjónsviði okkar við þegar hún kemur inn í augað. Þaðan berst hún með taug til svæðis aftast í heilanum og er túlkuð. En það sem verra er er að hún snýst ekki aftur við í bókstaflegri merkingu heldur ,,veit" heilinn að hún snýr hinseginn.......... þannig að allt sem við sjáum er snaröfugt............ Ég hef öðlast nýja sýn á karlmenn yfirleitt............

Staðreynd 4: Áfengisdrykkja hefur aðallega áhrif á litla-heila. Þar eru nokkrir taugakjarnar(mjög merkileg fyrirbæri og mikilvæg) sem heita: nucleus fastigii, nucleus globosus, nucleus emboliformis og nucleus dentatus.......... ekki mjög spennandi það svo sem, en þar sem þetta er ekki eitthvað sem þú bara manst þá hafa krakkarnir hér í læknadeildinni sett saman svokallaða aulareglu til að létta okkur lærdóminn. Hvað þessa kjarna varðar þá fannst mér hún nokkuð sniðug (talið medialt-lateralt/miðlægt-hliðlægt):

Í ML fara glaumgosar eða drykkjurútar..............

Félagi Beinbrjótur er ekki langt frá..........


Þessi vitneskja sem ég hef aflað mér síðust vikur ætti að hafa kúvent sýn minni á félagslega þátt lífsins en ég held bara nei............ þetta er eitthvað sem þarf að drekka frá sér þegar prófi er lokið.............
Hlakka til að sjá ykkur þann 13 febrúar og vona að þið njótið innleggsins......

Kveðja félagi Anatómisti

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home