Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

laugardagur, janúar 17, 2004

Tími til kominn!!!

Heilir og sælir félagar sukkabarar nær og fjær!

Þetta er nú löngu tímabær ákvörðun Linda mín að fara að gefa bjórnum sjéns. Það er þá hér með ákveðið að maður mætir með einn kaldan fyrir þig í afmælisdjammið ógurlega og langþráða í apríl. Það er nú ekki svo mikið eftir af bindindistímanum..... þetta styttist alla vega!
Það er nú kalt og snjóstormur víðar en í Ameríkunni, í gær var ég veðurteppt heima hjá mér og komst ekki upp í Árbæ til að vera í faðmi fjölskyldu Lindu að horfa á úrslitin í Idol. Það var mikil sorg!! Í staðinn skreið ég undir sæng með Höllu (.....rólegar það voru tvær sængur!) og við horfðum á Idolið í rífandi stemmningu (Halla var nefnilega veðurteppt hjá mér og þurfti þrjá til að ýta sér þegar komið var að því að fara heim).
Klæddu þig nú vel sprautan mín ef þú ætlar að fara að þvælast eitthvað út í þessum ógeðslega kulda, annars held ég bara að þú ættir að halda þig inni og jafnvel undir sæng og jafnvel með einhverjum sem getur haldið á þér hita .....say no more!
Ég skora á Hörpu kind að segja okkur reynslusögur úr kennarastarfinu hér sem fyrst. Það er alla vega greinilega nóg að gera í bransanum því það hefur reynst erfitt að ná í dömuna í síma og ekki get ég sagt að maður taki mikið eftir því að þú sért í bænum elskan mín en ekki á Laugarvatni þessa dagana. Segðu okkur endilega fréttir;)

Held að ég láti þetta duga í bili. Kveðja til ykkar allra!
Hælbrjótur, félagi sukkabari.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home