Beinbrjótur kemur loksins með fréttir!!
Eins og flestar ykkar vita er mjög svo viðeigandi að ég verði kölluð beinbrjóturinn ógurlega þessa dagana! Eftir að aðeins 3 vikur af kennslu hef ég áorkað 2 úlnliðsbrot og 1 olnbogabrot, geri aðrir betur! Til að toppa þetta allt þá ældi strákur hjá mér í einum sundtímanum, kannski spurning um að finna sér annan starfsvettvang!! Annars er þetta búið að vera fínt og bið félaga sukkabara afsökunar á lítill þátttöku minni í félagslífi sukkabara! Vonast ég hér með að þið hópist á Laugarvatn einhvern daginn og prófið smá sveitasukk!!( Arndís þú kannast við það!!)
Einnig væri ekki leiðinlegt ef að það væri hægt að fara í skíðasukkferð áður en vetri líkur!(Pabbi á hús á Akureyri sem hægt væri að fá lánað og þá er hægt að sukka almennilega!!)
Vil ég óska Hafdísi og Benna til hamingju með 3 ára brúðkaupsafmælið fyrr í mánuðinum og við erum nú eiginlega farnar að bíða eftir litlu krílunum!!!
Jæja Linda, nú fer að styttast í hinn langþráða aprílmánuð og guð minn góður hvað verður gaman þá!
Kveðja félagi beinbrjótur!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home