Námskeiðsdagar á Laugarvatni!!
Kæru félagar sukkabarar!! Það er hér með staðfest að engin lifandi mannvera kann að skemmta sér jafn vel og sukkabarar!! Hef nú verið í drykkjuskólanum á Laugarvaatni í rúmlega tvö ár og sé alltaf betur og betur að liðið hérna vantar sárlega smá kennslu í drykkjuleikjum, sukki og svínaríi! Því legg ég til að félagar sukkabarar haldi eins og 30 tíma námskeið hér á Laugarvatni um hvernig eigi nú að athafna sig í skemmtanalífinu! Er ég viss um að við höfum margt fram að færa, eins og val á rétta áfenginu(allt sem er áfengt virkar!), hvernig á að fara úr og í bíkiníinu á mettíma, hvernig á að halda uppi samræðum þótt maður viti ekkert hvað maður er að segja eða muni eftir því daginn eftir og hvernig á að velja sér réttu vinina sem hafa sama áhugamál og þú (sem er auðvitað að drekka áfengi í mikli magni, helst nakinn í heitum potti!). Er ég viss um að hver einsasti félagi hafi mikið fram að færa:
Linda gæti kennt málfræði og hraðmælsku
Hildur myndi náttúrulega sjá um kveðskapinn
Arndís gæti kennt allavega 5 skref af 12 í námskeiðinu:"Hvernig á að komast yfir tepruskap, þótt þig langi ekki til þess!"
Hafdís myndi vera sjálfskipaður námskeiðsstjóri og sjá til þess að enginn fengi blöðrubólgu eða aðra hættulega sjúkdóma, auk þess að hún myndi sjá um áfallahjálp
Halla myndi taka námskeiðin:"Hvernig á að renna niður einni hvítvínsflösku á innan við mínútu!" og einnig:"Hvenær er viðeigandi að segja vinum sínum hve graður maður er!!"
Harpa gæti kennt hvernig eigi að sturta ofan í sig dry vodka og drepast, og einnig hvernig á að taka vafasamar myndir af sjálfum sér og vinum sínum!
Vona að undirtektirnar verði góðar, því hver er betri að kenna Íslendingum drykkjusiði en gyðjur herra bakkusar!!
Kveðja að hætti sukkabara
Harpa skarpa

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home