10 árum síðar.....
Ein spurning? Svona til að láta hugan reika..... Þetta nær reyndar bara til ykkar árbæjargemlinga en ef hinar hafa eitthvað um þetta að segja endilega komið með komment! Anyway, þetta byrjaði bara sem venjulegur dagur, var rifin fram úr fyrir allar aldir til þess eins að geta hlaupið eins og vitleysingur fram og til baka milli keilna. Skil ekki alveg tilganginn þar sem enginn var boltinn (hann gefur leiknum tilgang nebblega skal ég ykkur segja)...... Byrjuðum við 9 eða 10 manns en enduðum eingöngu 6 þar sem að fólk datt aftur úr lestinni sökum verkja í hamstrengjum og öðrum vövðum! Ég meina hvaða heilvita fólk lætur draga sig fram úr heitu mjúku rúminu, út í skítakuldann til að spretta af sér rassgatið (hvernig sem maður fer nú að því)! Auk þess er maður svo þreyttur að maður er skíthræddur að maður bruni bara á veggin ef maður opnar ekki augun í tækatíð!!!! Svo endar maður með svo miklar hass-sperrur að maður getur varla farið á klósettið!
Nóg um það.... eftir átök dagsins var slappað af eftir getu yfir hollum og góðum heimatilbúnum hafragraut (lagði sko ekki aftur í pakka sullið). Og þá var heilinn svona aðeins að ranka við sér, og sat ég þar við matarborðið með þunga þanka..... og allt í einu datt mér í hug hvað þetta minnti mig á eina "sögu" sem ég heyrði í 9 bekk hjá henni Guðný Ýr ( að ég held alveg örugglega)!!!! Var það nebblega þannig að við fengum assignment um að skrifa eina bls eða svo um hvað við héldum að við værum að gera eftir 10 ár..... ok og flest allir skrifuðu einhverja draumóra með svaklegum díteilum... t.d ég, ég skrifaði um það að eftir 10 ár mundi ég vera útskrifuð úr íþróttakennaraháskólanum, orðin landsliðsþjálfari og alles, væri gift með 2 börn ( minnir að voru orðin 2-4 ára eða svo....) og maðurinn væri nottla líka allur í boltanum (týpíska boltafjölskyldan) og við skiptumst á að taka börnin með og þrátt fyrir að varla verið farin að labba voru þau farin að sýna þvílíka hæfileika með boltann!!!!!! Audda var ég nottla á Íslandi (hafði ábyggilega ekki farið þaðan í lengri tíma) og gaurin var nottla íslenskur!!!!! Bara svona til gamans þá var þetta skrifað 1995.... s.s fyrir 9 árum! Já, þannig að brátt munu 10 árin vera liðin og ég er ekki nálægt því að vera þarna! En því má ekki gleyma að besta sagan (ábyggilega eina sagan sem kennaranum líkaði) kom nottla frá kennarasleikjunni sjálfri... hahaha! Höllu Hrund, rámar mig eitthvað í það að hún hafi byrjað þannig að hún sat við eldhúsborðið með kaffi bolla, orðin leikari og voða fínt (Halla ef þú mannst eftir þessu endilega segðu frá) en eitt af því sem ég man bara var að þegar hún var að lesa þetta upp þá sá ég þetta alveg fyrir mér: Halla í stressi með kaffibolla og síkó sitjandi við eldhúsglugga í sínu eigin húsi í Árbænum, á ekki að mæta til vinnu fyrr en uppúr hádegi (svo mikið lúxuslíf hjá þessum leikurum)!!!! Hún var ábyggilega komin með kall og börn... man það ekki alveg! Kannski meiri líkur á að hennar muni rætast heldur en minn.... Já mér fannst þetta soldið skondið.... Fyrir 10 árum fannst maður að maður ætti að vera orðin elliær eftir tvítugt og lífið bara búið.... God, sénsinn mitt er varla byrjað!!!
Jæja, þá er hugleiknum lokið, Njótið vel
Félagi Hugleikur

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home