Bjórfélagið Sukkab

"Kneyfa skulum vér ölið af áfergju því fáir kunna það betur en vér" -Nallinn-

fimmtudagur, maí 12, 2005

Kæru félagar sukkabarar!!

Á þessum tímamótum vil ég þakka félögum sukkabörum fyrir stuðninginn í gegnum árin. Þessi þrjú ár hafa verið tilfinningaþrungin og einkennst af miklum lærdómi, vatnsdrykkju og hreyfingarleysi! þetta hfur tekið mikið á og hefði ég ekki komist í gegnum þetta ef félagarnir hefðu ekki verið svona duglegir að drífa mann í dansgallann og hella í mann ölinu og láta taka myndir af sé á vegamótum!! Priceless!! Og svo náttúrulega fyrir að vera óþreytandi að koma í heimsókn(!) og kynnast hinu spennandi og fjölbreytna lífi í hinum heillandi bæ (sveit) Laugarvatni!! En svona er þetta og stelpur mínar, engar áhyggjur, held að Laugarvatn hafi haft nóg með að hafa mig til staðar (ekki búast samt við mörgum heimsókunum frá mér þegar þið flytjið í Mosfellsbæinn!!)
Íþróttafræðingurinn kveður að sinni og hlakkar til að hrista spikið af börnum ykkar í framtíðinni!!
Yfir og út
Miss Maradona

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home